Í dag verður norðaustanátt, yfirleitt 8-13 m/s. Á norðan- og austanverðu landinu verða él en bjart að mestu í öðrum landshlutum. Seint í dag eru líkur á skúrum á sunnaverðu landinu, einkum syðst. Hitinn verður nálægt frostmarki norðan-og austanlands en sunnan- og suðvestantil verður hiti á bilinu 3 til 7 stig.