Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

MV Hondius fær að leggjast að bryggju á Kanaríeyjum

Spænska heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest að Spánn muni taka á móti skemmtiferðaskipinu MV Hondius á Kanaríeyjum í samræmi við alþjóðalög og af mannúðarástæðum. Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá.Tvö tilfelli hantaveiru hafa verið staðfest meðal farþega skipsins og fimm til viðbótar eru til rannsóknar. Þrír hafa látið lífið af völdum sýkingar.Heilbrigðisstarfsmenn munu skoða alla farþega og meta heilsu þeirra þegar skipið kemur í höfn á Kanaríeyjum og áður en farþegarnir ferðast aftur til heimalanda sinna, samkvæmt tilkynningu frá spænska heilbrigðisráðuneytinu.
MV Hondius fær að leggjast að bryggju á Kanaríeyjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta