21 var drepinn og um sjötíu særðust í árásum Rússa á borgirnar Zaporizhzhia, Kramatorsk og Dnipro í Úkraínu í gær. Þetta er eitt mesta mannfall í Úkraínu í nokkrar vikur.Þá greindu yfirvöld á Krímskaga frá því að fimm hefðu verið drepnir í árásum Úkraínumanna á Krímskaga. Rússar innlimuðu Krímskaga árið 2014.Rússar hafa lýst yfir einhliða vopnahléi dagana 8. og 9. maí vegna hátíðarhalda á föðurlandsdeginum mikla, sigurdegi síðari heimsstyrjaldarinnar. Þeir hóta stórfelldum eldflaugaárásum á miðborg Kyiv brjóti Úkraínumenn gegn því. Úkraínumenn hafa einnig lýst yfir einhliða vopnahléi í dag, 6. maí.Rússnesk stjórnvöld höfðu lýst því yfir að hátíðarhöld í ár yrðu með minna sniði en áður og enginn herbúnaður eða hergögn yrðu til sýnis í ár. Þá lokuðu yfirvöld fyrir netaðgang í farsímakerfinu