Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn

Sigfús Pétursson frá Álftagerði er látinn 83 ára að aldri. Sigfús lést 3. maí á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Feykir greinir frá andlátinu. Útförin verður gerð frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 15. maí.Sigfús var fæddur þann 23. apríl árið 1943. Hann var þekktur fyrir sína einstöku tenórrödd. Ásamt þremur bræðrum sínum skipaði hann kvartettinn Álftagerðisbræður. Kvartettinn naut mikilla vinsælda um árabil en árið 2019 kvöddu þeir bræður stóra sviðið með stórtónleikum í Hörpu.Sigfús var næstelstur sex systkina. Hann stundaði lengst af búskap í Álftagerði en seinustu árin bjó hann í Varmahlíð. Foreldrar Sigfúsar voru þau Pétur Sigfússon og Sigrún Ólafsdóttir.Hér má sjá innslag um þá bræður úr Landanum frá árinu 2019.
Sigfús Pétursson Álftagerðisbróðir látinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta