Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bókaormar hvattir til að leigja sér allt að þrjátíu bækur

Viðskiptavinir bókasafnsins í Hafnarfirði verða ekki bókalausir þó að safnið loki í um tvo mánuði vegna flutninga. Hver og einn má leigja sér allt að þrjátíu bækur og hafa hjá sér í sumar. Þetta gæti létt verulega undir segir Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður safnsins.Bókaormar gætu orðið dýrmæt hjálp við flutning Bókasafns Hafnarfjarðar í sumar. Viðskiptavinir eru hvattir til að leigja sér allt að þrjátíu bækur og geyma hjá sér þangið til safnið hefur flutt.„Þann 18. maí þá munum við loka þessu safni hérna og byrja flutning og við erum reyndar búin að vera að undirbúa okkur í tvö ár fyrir flutninginn og við áætlum að vonandi getum við opnað í júlí,“ segir Sigrún.Bókasafnið í Hafnarfirði flytur í verslunarmiðstöðina Fjörð á 2. hæð í um 1700 fermetra rými. Flutningarnir verða umfangsmiklir
Bókaormar hvattir til að leigja sér allt að þrjátíu bækur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta