Danskar konur grípa margar í tómt í apótekum þegar þær leita að lyfjum við verkjum og óþægindum sem tengjast breytingaskeiðinu. Fjöldi kvenna í Danmörku sem tekur lyf vegna breytingaskeiðsins hefur rúmlega þrefaldast á fjórum árum.Árið 2021 fengu rúmlega 14 þúsund konur lyf sem frásogast í gegnum húðina eins og plástra, gel eða sprey, en árið 2025 voru þær rúmlega 50 þúsund. SKORTUR HEFUR ÁHRIF Á DAGLEGT LÍF Anette Tønnes Pedersen, yfirlæknir á kvensjúkdóma-, frjósemis- og fæðingadeild í Danmörku, segir það vera meiri háttar vandamál þegar konur fá ekki þá hormónameðferð sem þær eru vanar að fá. Þær hafi einkenni sem að leysa þurfi til að þær geti sinnt atvinnu og félagslífi.Sumir hafa gripið til þess ráðs að panta lyf að utan. Sebastian Thude, eigandi Rats-Apotek í Flensburg í Þýskalan