Átta listar eru í framboði á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum í ráðhúsinu. Þátttakendur eru: * Þórhallur Jónsson fyrir Akureyrarlistann * Sunna Hlín Jóhannesdóttir fyrir Framsóknarflokkinn * Óðinn Svan Óðinsson fyrir L-listann * Hlynur Jóhannsson fyrir Miðflokkinn * Sindri S. Kristjánsson fyrir Samfylkinguna * Berglind Ósk Guðmundsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn * Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir fyrir Viðreisn * Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir fyrir VG Um 20.000 manns búa á Akureyri og hefur fjölgað um tæplega þúsund frá síðustu kosningum. Meirihluta í bæjarstjórn mynda fulltrúar L-listans, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.Umsjónarmenn eru Anna Kristín Jónsdóttir og Valgeir Örn Ragnarsson.