Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mjög kærkomið að Herjólfur hafi komist til Landeyjahafnar

„Það er mjög kærkomið að það sé búið að opna höfnina,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs. Ferjan sigldi til Landeyjahafnar í kvöld.„Hún gekk bara vel, siglingin upp eftir, gaman að endurnýja kynnin við Landeyjahöfn. Það voru margir sem fóru með, um hundrað manns í hvorri ferð og fullt bíladekkið,“ segir Ólafur.„Dýpi til siglinga á háflóðinu það er bara mjög gott en það er náttúrulega það að tíminn á flóðinu færist, en við vonumst til þess að þetta verði fljótlega þannig að við þurfum ekki alltaf að vera á háflóðinu.“ VONAST EFTIR ÚRBÓTUM Aðstæður til siglinga til og frá Vestmannaeyjum hafa verið sérstaklega krefjandi síðustu mánuði, meðal annars vegna veðurs, sjólags og bilunar í rafmótor Herjólfs.„Það er búið að ganga á ýmsu hjá okkur það sem af er ári,“ segir
Mjög kærkomið að Herjólfur hafi komist til Landeyjahafnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta