Forstjóri Icelandair telur ekki líkur á því að áhafnarskortur sem leiddi til þess að flugferð til Kaupmannahafnar var aflýst í dag tengist kjaraviðræðum við flugmenn og flugvirkja. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir engar aðgerðir í gangi á vegum félagsins. Formaður Flugfreyjufélags Íslands tekur í sama streng.