Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„En það er auðvitað engin ein lausn við fíkniefnavandanum“

Heilbrigðisráðherra segir að ekki standi til að breyta fíkniefnalöggjöfinni sem stendur. Hún segir að forvarnir og víðtæk nálgun séu nauðsynleg til að takast á við fíkniefnavandann. EKKI STANDI TIL AÐ BREYTA FÍKNIEFNALÖGGJÖFINNI Í fréttaskýringaþættinum Kveik í síðasta mánuði var fjallað um fíkniefnavandann og þá miklu aukningu sem hefur orðið í notkun krakks hér á landi. Þar kom fram að þrátt fyrir að stjórnvöld verji milljörðum árlega í stríðinu gegn fíkniefnum sé gríðarlegt framboð fíkniefna hér á landi og aldrei hefur verið lagt hald á eins mikið magn af kókaíni og í fyrra.Alma Möller, heilbrigðisráðherra, segir þáttinn sláandi og dragi fram hversu umfangsmikill fíkniefnavandinn sé. Ýmsar leiðir þurfi að fara.„En það er auðvitað engin ein lausn við fíkniefnavandanum,“ segir ráðherra
„En það er auðvitað engin ein lausn við fíkniefnavandanum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta