Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Á fjórða þúsund í framboði á 182 listum

Kosið verður til sveitarstjórna hér á landi eftir ellefu daga. Á fjórða þúsund manns er í framboði á 182 listum í 61 sveitarfélagi. Kosið verður í 57 því sjálfkjörið er í fjórum sveitarfélögum. Langflest framboð eru í Reykjavík. Óbundin kosning er í sjö sveitarfélögum.Ríflega 194 þúsund eru á kjörskrá í þeim sjö sveitarfélögum sem mynda höfuðborgarsvæðið, þar af 108 þúsund í Reykjavík.Meðalaldur frambjóðenda er 45,7 ár, allt frá 18 ára til 98 ára. Karlar eru ívið fleiri á listunum eða 53 prósent en konur eru 47 prósent þeirra sem bjóða fram.Í sjónvarpsfréttum kom fram að elsti frambjóðandinn væri 98 ára á lista Vinstri grænna og óháðra í Kópavogi. Hið rétta er að elsti frambjóðandinn er á lista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ og verður 99 ára í sumar.
Á fjórða þúsund í framboði á 182 listum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta