Öryggisatvik sem kom upp hjá þjónustuaðila Canvas-námsumsjónarkerfis Háskóla Íslands olli tímabundnum truflunum á kerfinu. Mögulegt er að óviðkomandi aðilar hafi fengið aðgang að ákveðnum notendaupplýsingum eins og nafni, netfangi og skilaboðum milli notenda í Canvas.Háskólinn sendi nemendum póst í dag þar sem greint er frá öryggisatvikinu.Öryggisatvikið tengdist alþjóðlegri þjónustu Canvas og hafði því atvikið áhrif víðar en í Háskóla Íslands. Viðbragðsteymi hafa brugðist við brestinum og hefur námsumsjónarkerfið verið fært í eðlilegt horf.Í tilkynningu frá háskólanum segir að ekki séu neinar upplýsingar um að nemendur í Háskóla Íslands hafi orðið fyrir áhrifum bilunarinnar.„Rannsókn á vegum þjónustuaðila stendur enn yfir og fylgjumst við náið með framvindu hennar. Við munum upplýsa um st