Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Aðgerðum fækkaði um 640 samhliða aukinni notkun þyngdarstjórnunarlyfja

Miklar sveiflur í fjölda efnaskiptaaðgerða hér á landi skýrast af uppsafnaðri þörf fyrir nokkrum árum og síauknum vinsældum þyngdarstjórnunarlyfja að undanförnu, að mati kviðarholsskurðlæknis. Hann telur eftirspurnina vera meiri hér en í nágrannalöndunum því ofþyngd sé algengari hér á landi.Efnaskiptaaðgerðum fjölgaði um úr nærri 600 árið 2020 í rúmlega þúsund árið 2021, samkvæmt gögnum frá Sjúkratryggingum Íslands. Þá náði fjöldinn hámarki og síðan þá hefur þeim fækkað á hverju ári. Í fyrra voru þær um 400.„Þessi mikli fjöldi fyrir nokkrum árum, hann var kannski óeðlilega mikill, sem skýrist meðal annars af því að það var ákveðin uppsöfnuð þörf á Íslandi fyrir þessar aðgerðir,“ segir Aðalsteinn Arnarson, kviðarholsskurðlæknir hjá Klíníkinni, þar sem meirihluti efnaskiptaaðgerða hér á land
Aðgerðum fækkaði um 640 samhliða aukinni notkun þyngdarstjórnunarlyfja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta