Lögreglu barst í dag tilkynning um að eldur hefði kviknað í bifreið í umdæmi lögreglustöðvar tvö, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ. Í sama umdæmi var tilkynnt um þjófnað í verslun fyrr í dag, og eru bæði málin nú til rannsóknar hjá lögreglu.