Flugi Icelandair til Kaupmannahafnar síðdegis var aflýst með stuttum fyrirvara vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn fyrir flugið. Fyrsti fundur í kjaraviðræðum félagsins við Félag atvinnuflugmanna var hjá ríkissáttasemjara í dag.Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir aflýsingar vegna áhafnarskorts mjög saldgæfar, en en kveðst ekki trúa því að ástæðan sé óformlegar verkfallsaðgerðir.„Nei, ég geri ekki ráð fyrir því og trúi því ekki, vegna þess að við þekkjum öll að það er mikil óvissa í alþjóðaumhverfinu okkar og staðan gríðarleg a krefjandi flugrekstri. Við sáum rótgróið flugfélag fara á hausinn um helgina, hætta störfum eftir 36 ár í rekstri,“ segir Bogi og vísar þar til hins bandaríska Spirit Airlines.„Og eldsneytisverð hefur tvöfaldast núna á örskömmum tíma þannig ég trúi því