Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Íran ekki eiga möguleika gagnvart Bandaríkjunum þegar hann ávarpaði fjölmiðla á skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í dag.Hann sagði mikilvægt að Írönum yrði ekki leyft að eiga kjarnorkuvopn og lagði áherslu á að Bandaríkin hefðu útrýmt land-, sjó- og flugher Írans ásamt leiðtogum landsins – nokkuð sem forsetinn hefur ítrekað sagt á undanförnum vikum.Forsetinn fullyrti að Bandaríkin ynnu að gerð „frábærra samninga“ við Suður-Kóreu og Japan um opnun Hormússunds. Hann endurtók jafnframt að Íranar vildu gera samning við Bandaríkin.„Þeir spila leiki, en leyfið mér að segja ykkur, þeir vilja gera samning,“ sagði Trump. VARNARMÁLARÁÐHERRA SEGIR AÐGERÐUM EKKI LOKIÐ Fyrr í dag sagði Pete Hegeseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að aðgerðir til að verja sjóflu