Logn, kynsegin femínisti og listamaður, er stofnandi Rauðu regnhlífarinnar sem eru samtök kynlífsverkafólks á Íslandi. Hán ólst að mestu leyti upp á Englandi en flutti aftur heim til Íslands árið 2016. Logn vann við kynlífsvinnu á Englandi og segir að hjá Rauðu regnhlífinni sé unnið út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði. Hán segir að lögin eigi að geta náð yfir raunverulegar aðstæður...