Kona sem stundaði vændi um stutt skeið skömmu eftir aldamót segir reynsluna hafa markað líf hennar allar götur síðan. Hún segir fjárhagsvanda hafa leitt til þess að hún ákvað að prófa að selja aðgang að líkama sínum og að, til að byrja með, hafi það ekki verið eins hræðilegt og hún hafði ímyndað sér.Fljótlega hafi henni þó fundist hún missa stjórn á aðstæðunum sem bitnuðu á andlegri líðan hennar. Hún er enn að vinna úr afleiðingunum.„Ég hef alltaf lýst því þannig að það var bara eins og ég væri vélmenni, og hjartað væri bara vél. Ég tók bara hjartavélina úr mér og setti á náttborðið á meðan á þessum athöfnum stóð – þannig að ég þurfti ekkert að taka þetta inn. Og svo þegar þeir voru farnir þá gat ég sett hjartað aftur inn,“ segir konan í Sögum af raunveruleikanum á Rás 1.Hugmynd hennar um