„Ég ætla að halda áfram að vera gráhærð fyrir sjálfa mig,“ segir leikskólastjórinn Erna Agnes Sigurgeirsdóttir sem tók ákvörðun í ágúst í fyrra að hætta að lita á sér hárið. Blaðamaður ræddi við hana um breytinguna, áhrif hennar á Ernu sjálfa og viðbrögðin.