KaffitárKaffitár lokar síðustu kaffihúsum sínum í Kringlunni og í Háskólanum í Reykjavík í lok maí. Fyrirtækið greinir frá þessu á Facebook og segir þetta gert með miklum trega. Það þakkar viðskiptavinum, starfsfólki og samstarfsaðilum fyrir 31 ár af gleði og ilmandi kaffi. Kaffitár rak a.m.k. sjö kaffihús þegar mest lét.„En þrátt fyrir breytta tíma er margt spennandi framundan hjá okkur! Við munum halda áfram að efla „pop-up” kaffibarinn á viðburðum, fyrirtækjaþjónustuna okkar og kaffiframboð í verslunum. Við höldum áfram að framleiða gæðakaffið okkar í Kaffibrennslu Kaffitárs og þróa spennandi nýjar tegundir,“ segir í færslunni.