Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vísar fullyrðingum um gullhúðun alfarið til föðurhúsanna

Atvinnuvegaráðherra hafnar alfarið fullyrðingum Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, að breytingar á lögum um ársreikninga séu gullhúðun. Atvinnulífið hafi í langan tíma kallað eftir þessum breytingum.Samtökin hafa sent efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis viðbótarathugasemd um frumvarpið – bæði varðandi framsetningu og forsendur þess. Þau segja óásættanlegt að íslensk fyrirtæki búi við strangari reglur en almennt þekkist innan Evrópska efnahagssvæðisins, EES. Hvað er gullhúðun? Hugtakið gullhúðun er notað um það þegar stjórnvöld einstakra ríkja ganga lengra og setja íþyngjandi ákvæði umfram þær lágmarkskröfur sem gerðar eru í EES-gerðum við innleiðingu.Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir frumvarpinu fyrst og fremst ætlað að létta á pappírsvinnu fy
Vísar fullyrðingum um gullhúðun alfarið til föðurhúsanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta