Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Djúpfalsað efni frá Jónfrí

„Snekkjurokk og diskó er í tímabundnu leyfi og við fáum teknóskotinn indísmell sem hljómar eins og Tame Impala og Pálmi Gunnarsson í full Þorpara-mode myndu ákveða að rífa í sundur dansgólfið á Berghain,“ segir Jónfrí um nýja lagið. „Enginn afsláttur, bara keyrsla.“Hann segir lagið fjalla um að ríghalda í eitthvað mennskt á tímum þar sem Kísildals-algrímið seilist æ dýpra inn í líf okkar allra. Lagið er titillag væntanlegrar plötu sem kemur út í haust.Jón Frímannsson syngur og spilar á gítar, Kristinn Þór Óskarsson leikur á rafmagnsgítara og syntha, Birgir Hansen er á bassa og Sölvi Steinn Jónsson trommar.Hlustaðu á lagið í spilaranum hér að ofan.
Djúpfalsað efni frá Jónfrí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta