Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fjögurra prósenta fylgi frá síðustu bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi og myndi frá fimm sveitarstjórnarmenn í stað fjögurra, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Meirihlutinn í bæjarstjórn héldi, samkvæmt þessu, þrátt fyrir að Framsókn tapi nær helmingi fylgis síns og öðrum bæjarfulltrúanum.Maskína kannaði fylgi flokkanna og var greint frá niðurstöðum könnunarinnar í Pallborðinu á Vísi í dag.Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa verið í meirihlutasamstarfi þetta kjörtímabil með samanlagt sex kjörna fulltrúa af ellefu í bæjarstjórn.Samfylkingin mælist næststærst með 23,2 prósenta fylgi, fimmtán prósentum meira en í bæjarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum. Það myndi skila flokknum þremur bæjarfulltrúum í stað eins.Næst koma Viðreisn (11,7%)