Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Kópavogi heldur í krafti fylgisaukningar Sjálfstæðisflokks, samkvæmt nýrri könnun. Samfylkingin er á mikilli siglingu og mælist með tæplega þrefalt meira fylgi en í kosningunum árið 2022. Miðflokkur margfaldar fylgi sitt sömuleiðis.