Utanríkisráðuneytið hefur ekki getað fundið til nein gögn, sem styðja fullyrðingar í skýrslu utanríkisráðherra um gang aðildarviðræðna frá 2013 um að Ísland og Evrópusambandið (ESB) hafi snemma í samningaferlinu 2010-12 komist að samkomulagi um að aðlögun að ESB hæfist ekki fyrr en aðildarsamningur næðist.