Rithöfundurinn Stefán Máni er á nýjum slóðum í sinni nýjustu skáldsögu, Þegar heimurinn fórst. Hann hefur sjálfur sagt að þetta sé bók sem hans vinsælasta sögupersóna, Hörður Grímsson, myndi helst vilja lesa.„Ég leyfi mér að efast um það,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi í Kiljunni. „Þarna tel ég mig vita betur en Stefán Máni. Hörður Grímsson hefði ekki enst til að lesa þessa bók til enda.“Sögusviðið er Bandaríkin og Tommi er á flótta eftir að hafa framið ódæðisverk. Örlögin leiða hann saman við Míu og fjölskyldu hennar rétt áður en allt breytist.„Það sem gerist er að loftsteinn rekst á jörðina og það verður heimsendir. Svo virðist sem Tommi og Mía séu þau einu sem eru eftir lifandi.“Sagan byggist á samskiptum þeirra þar sem þau koma sér fyrir í stórri verslun í úthverfi stórborga