Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr dælu hefur skilað sér til neytenda segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, og á von á að hún dragi úr verðbólgu. Lækkunin úr 24 prósentum í 11, tók gildi um mánaðamótin.„Þetta virðist hafa tekist alveg frábærlega,“ segir Daði Már sem á von á því að lækkunin skili sér inn í næstu verðbólgumælingar.„Hún hlýtur að gera það. Ef hún skilar sér á dælunni þá skilar hún sér inn í mælingar Hagstofu Íslands.“Spurður hvort tilefni sé til að beita sektum gagnvart olíufélögunum ef lækkanir skili sér ekki til neytenda segir Daði slíkar spurningar fræðilegar miðað við hvernig innleiðingin hafi gengið. „Vegna þess að þau [olíufélögin] hafa fyllilega hagað sér í samræmi við það sem ætlað var.“Samkeppniseftirlitið hefur ekki tekið ákvörðun um sektir.Lækkun á vir