Íslenska ríkið var í morgun sýknað af öllum kröfum Lárusar Welding fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Hann vildi meina að brotið hefði verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar með skipan Hrefnu Sigríðar Briem sem sérfróðs meðdómanda í Stím-málinu svokallaða. Sjö manna dómstólinn klofnaði í málinu.