Maður sem keyrði inn í hóp af fólki í miðborg Leipzig í Þýskalandi í gær hafði fyrir atvikið verið vistaður á lokaðri geðdeild. Kona á sjötugsaldri og maður á áttræðisaldri létust og fjöldi til viðbótar særðist.Ökumaðurinn, 33 ára karlmaður, var handtekinn á vettvangi í gær. Staðarmiðillinn Leipziger Volkszeitung greinir frá að hann heiti Jeffrey K. Hann er sagður glíma við andleg veikindi og var áður vistaður á lokaðri geðdeild í Norður-Saxlandi.Rannsókn málsins stendur enn, hluti miðborgarinnar er áfram lokaður og lögregla greinir nú myndir og myndskeið frá vettvangi.Í morgun var haldin minningarathöfn um þau sem létust, 63 ára kona og 77 ára karlmaður. Að minnsta kosti þrjú særðust alvarlega og fjöldi til viðbótar særðist minna.Alex Schuh, slökkviliðsstjóri í Leipzig, segir allt viðbrag