Ertu í vandræðum með að ákveða hvað þú átt að kjósa 16. maí? Þá gæti kosningapróf RÚV mögulega hjálpað þér. Opnað var fyrir prófið í morgun.Smelltu hér til að taka kosningapróf RÚV.RÚV hefur boðið upp á kosningapróf í mörgum umliðnum kosningum til sveitarstjórna, Alþingis og forseta. Prófið í ár er sambærilegt því sem notað var fyrir þingkosningarnar 2024, nema að þessu sinni er það að hluta til sérsniðið að hverju sveitarfélagi fyrir sig. Margar spurninganna eða fullyrðinganna í prófinu eru almennar og varða stóru línurnar í pólitíkinni, með áherslu á málefni sveitarfélaganna, en svo eru einnig sértækari spurningar sem snúa að völdum sveitarfélögum, eða jafnvel einungis að þínu sveitarfélagi.Prófið getur gefið þér vísbendingu um hvernig afstaða þín rímar við afstöðu frambjóðenda og flokka