Húsdýragarðurinn Daladýrð í Fnjóskadal er rekinn af Guðbergi Agli Eyjólfssyni og Hrefnu Björk Sigurðardóttur. Þar má finna tólf dýrategundir og enn fleiri undirtegundir. Þeirra á meðal eru hyrndar kýr sem kvikmyndaframleiðendur frá Hollywood voru allt í einu á höttunum eftir. „Ég leigði kýr til Hollywood, náði góðum díl þar,“ segir Guðbergur. „Þær verða í Ódysseifsskviðu með Matt Damon og Ann Hathaway, einni dýrustu Hollywood-mynd sem hefur verið framleidd í áratugi.“ Myndin sem leikstýrt er af Christopher Nolan kemur út síðar í sumar.