Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hvaða málefni skipta fólk mestu máli fyrir kosningarnar?

Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru efst í huga kjósenda fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Gatna- og vegamál eru einnig ofarlega á blaði en almenningssamgöngur ná ekki inn á topp 10 í ákveðnum sveitarfélögum. Þetta sýna niðurstöður úr Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir rúma viku.Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði, safnaði gögnunum en hann kannaði einnig afstöðu borgarbúa til Borgarlínu og þéttingu byggðar. Þá var einnig könnuð ánægja íbúa með þjónustu sveitarfélaganna á kjörtímabilinu.Fjallað var um könnunina og rætt við Rúnar í Kastljósi í gær.
Hvaða málefni skipta fólk mestu máli fyrir kosningarnar?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta