Stefnt er að því að sigla Herjólfi til Landeyjarhafnar síðdegis en ferjan hefur nánast alfarið siglt til Þorlákshafnar síðan í janúar. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ástandið í vetur hafa reynst mörgum Vestmannaeyingum erfitt og vonar að dagurinn marki formlega opnun á höfninni á þessu ári.