Börkur Reykjalín Brynjarsson, utanvegahlaupari og verkfræðingur, keyrði sig í þrot með fjölskyldufyrirtæki sitt, endaði í ógöngum með spilafíkn og íhugaði að binda endi á líf sitt. Hann leitaði sér hjálpar hjá Píeta-samtökunum, er gríðarlega þakklátur fyrir starf þeirra og hefur síðustu sex ár staðið fyrir árlegum hlaupum til styrktar samtökunum.