Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

WHO segir mögulegt að hantaveiran smitist manna á milli

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að grunur sé um að hantaveiran sem greindist í vikunni um borð í skemmtiferðaskipi við Grænhöfðaeyjar smitist manna á milli. Tvö tilfelli hantaveiru hafa verið staðfest meðal farþega skipsins og fimm til viðbótar eru til rannsóknar. Þrír hafa látið lífið af völdum sýkingar. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að unnið sé að því að hafa uppi á farþegum í flugi milli eyjunnar Sankti Helenu í Suður-Atlantshafi og Jóhannesarborgar í Suður-Afríku, tuttugasta og fimmta apríl. Einn farþega skipsins var í fluginu og lést daginn eftir.Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir einn þeirra smituðu vera alvarlega veikan og þrír séu með vægari einkenni.Fyrst fór að bera á veikindum meðal farþega skipsins á milli sjötta og 28. apríl. Stofnunin segir að einkennin séu hiti, magakve
WHO segir mögulegt að hantaveiran smitist manna á milli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta