Lítið eitt fleiri börn fæddust í fyrra en árið á undan. Alls komu 4,387 börn í heiminn á síðasta ári, 76 fleiri en 2024. Drengir voru öllu fleiri en stúlkur, 2.292 á móti 2.095. Frjósemi kvenna hefur aldrei verið minni frá því mælingar hófust hér á landi 1853. Frjósemin var 1,56 börn á hverja konu sem bjó á Íslandi. Það er sama hlutfall og 2024 en það hefur aldrei verið lægra. Yfirleitt er miðað við að frjósemi sé 2,1 barn á hverja konu til að viðhalda mannfjölda. Það hlutfall náðist síðast 2012.Frjósemi á Norðurlöndum var mest í Færeyjum, 2,1, en minnst í Finnlandi, 1,3.Scott Webb