Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Börn og ungmenni 17 ára og yngri frá frítt í sund

Börn og ungmenni 17 ára og yngri með lögheimili í Reykjavík fá frían aðgang í sund og á Ylströndina frá og með 5. maí.Ný gjaldskrá hjá sundlaugum Reykjavíkurborgar, Ylströndinni og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum tekur gildi í dag. Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að breytingunum sé ætlað að gera reglulega notkun aðgengilegri og einfalda fyrirkomulag aðgangs fyrir gesti.Með breytingunum lækkar kostnaður árskorts í sundlaugar Reykjavíkur úr 48.000 krónum í 34.000 krónur. Þá lækkar árskort barna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn úr 17.600 krónum í 4.000 krónur. Á Ylströndina lækkar árskortið um 21%.Breytingarnar ná til Sundlauga Reykjavíkur, Ylstrandarinnar og Fjölskyldu- og húsdýragarðsinsRúv / Ragnar Visage
Börn og ungmenni 17 ára og yngri frá frítt í sund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta