Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur aukið öryggisgæslu sína verulega. Þá hefur hann einangrast töluvert og ver mestum tíma sínum í neðanjarðarbyrgjum þar sem hann grandskoðar stöðuna í Úkraínu. Forsetinn er sagður verja minni tíma en áður í stjórn Rússlands.