Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

26 fórust þegar flugeldaverksmiðja sprakk

Kínversk yfirvöld staðfestu í dag að 26 hefðu farist þegar mikil sprenging varð í flugeldaverksmiðju í Liuyang í Húnan-héraði í Kína í gær. 61 slasaðist í sprengingunni. Fyrsta sprengingin varð rétt fyrir klukkan fimm síðdegis í gær meðan vinna var í fullum gangi. Mikill eldur braust út og mátti heyra fjölda sprenginga í framhaldinu. Tæplega 500 björgunarmenn voru sendir á staðinn til að bjarga fólki og leita í rústunum. Mannskæð slys eru nokkuð tíð í kínverskum flugeldaverksmiðjum. Níu fórust í sprengingu í fyrra og þrír í annarri sprengingu 2023.In this photo released by Xinhua News Agency, this aerial drone photo taken in the early hours of May 5, 2026, rescuers work on site after an explosion at a fireworks plant in Guandu Town of Liuyang, central China's Hunan Province.(Chen Sihan/Xin
26 fórust þegar flugeldaverksmiðja sprakk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta