Stefnt er að opnun nýs unglingaskóla í Ármúla haustið 2027 fyrir 250 nemendur. Skrifstofustjóri eignastýringar hjá umhverfis- og skipulagssviði segir að þannig eigi að svara brýnni þörf nærliggjandi skóla fyrir viðbótarpláss.Borgarráð hefur samþykkt leigusamning við Selið Fasteignafélag ehf. fyrir leik- og grunnskólastarfsemi í Ármúla 28 til 30. Ragnheiður Sigvaldadóttir, skrifstofustjóri eignastýringar hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, segir skólann opna í hverfi sem sé í hraðri uppbyggingu.„Þetta er að leysa úr þessum tímabundna húsnæðisvanda sem er meðal annars vegna viðhalds húsnæðis borgarinnar í skólanum en svo er líka þörf í hverfinu á viðbótarplássi,“ segir Ragnheiður.„Þetta er skóli í hverfi sem er að byggjast mjög hratt upp og þarna alveg í nágrenninu er til dæm