Karlmaður á fertugsaldri var fyrir helgi dæmdur í tveggja ára rekstrarbann vegna starfsemi byggingafyrirtækisins PJ Verks. Maðurinn var eini stjórnarmaður fyrirtækisins, framkvæmdastjóri þess og prókúruhafi frá stofnun fram að gjaldþroti. Hann er einnig skráður eigandi félagsins í fyrirtækjaskrá.Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur sagði að ekki væri annað ráðið af gögnum en að félagið hafi kerfisbundið verið tæmt af fjármunum með ráðstöfun þeirra í þágu eigandans. Þetta hafi haft í för með sér tilheyrandi tjón fyrir kröfuhafa og samfélagið.Dómari taldi sannað að eigandi og stjórnandi fyrirtækisins hefði látið fyrirtækið greiða sjálfum sér sex milljónir króna og að auki látið það greiða ýmsan persónulegan kostnað hans. Þetta hefði hann gert með úttektum úr hraðbönkum og millifærslum á eigin re