Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Veruleg neikvæð áhrif á landslag og ásýnd

Vindmylluvirkjun á Garpdalsfjalli hefði veruleg neikvæð áhrif á landslag og ásýnd í nágrenninu, einkum fyrir þá sem eru á ferð um Saurbæ eða Þröskulda og þá sem stunda útivist til fjalla í nágrenni vistorkuversins. Möguleikar til að draga úr þessum áhrifum eru takmarkaðir.Þetta segir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í áliti sínu um umhverfismat vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Álitið var birt fyrir helgi.EM orka vill reisa vindorkuvirkjun í Garpsdal í Reykhólahreppi og hélt kynningarfundi í vetur.HMS telur einnig að endurgerð vegaslóða um bratta fjallshlíð hafi talsverð neikvæð áhrif og valdi sýnilegum breytingum á svæðinu.Vindorkuverið er líklegt til að valda því að einhverjir fuglar drepist en ekki verður mikið um það. Ólíklegt er að það myndi hafa áhrif á stofnstærð fugla í nágrenninu. Þó t
Veruleg neikvæð áhrif á landslag og ásýnd

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta