Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Svalt og blæs aðeins

Útlit er fyrir að hiti verði um frostmark á norðan- og austanverðu landinu í dag og þar eru líkur á éljum að auki. Annars staðar verður þurrt að kalla en líkur eru á stöku skúrum syðst á landinu annað kvöld.Norðanátt verður ríkjandi í dag og næstu daga en veður fer hlýnandi á föstudag og laugardag.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðlæg átt fimm til þrettán metrar á sekúndu. Él norðan- og austantil, en annars þurrt að kalla. Líkur á stöku skúrum syðst á landinu annað kvöld.Norðaustan átta til þrettán og él á morgun, en yfirleitt bjart veður sunnan- og vestanlands.Hiti um frostmark á norðan- og austanverðu landinu en að 7 stigum sunnanlands.
Svalt og blæs aðeins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta