Franskur bjór með sítrónubragði er nánast uppseldur eftir að lögmannateymi japanska listamannsins Yoko Ono og ekkju Johns Lennon krafðist þess að framleiðslu hans yrði hætt. Ástæðan er sú að bjórinn, sem hefur verið í framleiðslu síðustu fimm ár, var nefndur John Lemon sem Ono þótti höggva fullnærri nafni eiginmanns hennar og bítilsins sáluga.„Okkur fannst nú bara svalt að nefna bjórinn þetta á sínum tíma,“ segir Aurelien Picard, eigandi örlitla brugghússins Brasserie de l'Imprimerie á Bretagneskaga. Ono hefur áður brugðist af hörku við svipaðri markaðssetningu og sömu nafngift, meðal annars gegn pólskum límonaðiframleiðanda og þýsku öldurhúsi.Heiti sumrar mungátarinnar er svipaður orðaleikur með nöfn frægs fólks. Starfsmenn eru tveir og framleiða 50 til 80 þúsund flöskur á ári sem seldar