Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rán og gripdeildir í höfuðborginni og tveir handteknir fyrir líkamsárásir

Lögregla að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.RÚV / Vignir Már EiðssonTveir menn í annarlegu ástandi voru í gærkvöld eða nótt handteknir annars vegar í Kópavogi og hins vegar í miðborg Reykjavíkur fyrir líkamsárásir sem leiddu af sér minniháttar áverka, að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sá síðarnefndi braut einnig gegn lögum um vopnaburð. Alls gistu fjórir fangageymslur í morgun, þeirra á meðal maður sem í annarlegu ástandi framdi rán miðsvæðis í borginni. Auk þess sinntu lögreglumenn útköllum vegna þjófnaðar úr verslunum og í einu tilfelli var reiðhjól tekið ófrjálsri hendi. Bæði þjófurinn og hjólið fundust fljótlega.
Rán og gripdeildir í höfuðborginni og tveir handteknir fyrir líkamsárásir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta