Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, er sagður á hægum batavegi eftir að hann fékk heiftarlega lungnabólgu og var lagður inn á sjúkrahús.Rudy Giuliani fékk svæsna lungnabólgu og var settur í öndunarvél.EPA / STEVE POPETalsmaður Giulianis segir hann hafa verið tekinn úr öndunarvél og segir veikindin tengjast hryðjuverkaárásunum á New York 2001. Þá hafi borgarstjórinn þotið í átt að Tvíburaturnunum til liðsinnis og hafi þá andað að sér hættulegum efnum sem ollu honum lungnasjúkdómi.Því sé hann viðkvæmari en ella fyrir öllu áreiti og sýkingum í öndunarfærum. Enn hefur hvorki komið fram hve lengi Giuliani hefur verið veikur né hvar hann nýtur umönnunar. New York Timses segir hann dvelja í Flórída.