Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bílaflutningaskip Maersk sigldi í herskipafylgd gegnum Hormússund

Bandarísk herskip fylgdu bílaflutningaskipinu Alliance Fairfax heilu og höldnu gegnum Hormússund og út úr Persaflóa í gær. Flutningaskipið er í eigu danska skipafélagsins Maersk, að því er segir í frétt DR, og siglir undir bandarískum fána.Félagið hrósar Bandaríkjaher fyrir fagmennsku og segir í tilkynningu að siglingin hafi gengið vel og að áhöfnin hafi ekki verið í neinni hættu. Bandaríkjaher hafi skipulagt siglinguna í hörgul með öll öryggissjónarmið í huga ásamt MLL, bandarísku dótturfélagi Maersk.Alliance Fairfax er eitt hundraða skipa sem urðu innlyksa á Persaflóa eftir að Ísraelar og Bandaríkjamenn hófu styrjöldina gegn Íran í lok febrúar. Þá lokuðu Íranir fyrir nær allar siglingar um Hormússund.
Bílaflutningaskip Maersk sigldi í herskipafylgd gegnum Hormússund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta