Stjórnvöld í nokkrum ríkjum hvetja Bandaríkjamenn og Írana til að komast hjá stigmögnun átaka. Stórfelldar árásir voru gerðar á Sameinuðu arabísku furstadæmin í gær. Franskir og sádiarabískir ráðamenn, breski forsætisráðherrann Keir Starmer og Friedrich Merz Þýskalandskanslari lýstu miklum áhyggjum og sá síðastnefndi sagði Írana þurfa að setjast að samningaborði og hætta að halda Mið-Austurlöndum í gíslingu. Árásirnar á furstadæmin eru raktar til Írana, sem sverja þær ekki af sér. Bandaríkjaher kveðst hafa grandað sex írönskum herbátum sem ógnuðu skipaumferð á Hormússundi í gær og skotið niður eldflaugar og dróna sem stefndu á flutninga- og herskip. Íranskir ráðamenn segja ekkert hæft í því að herbátum hafi verið sökkt.AFP-fréttaveitan hefur jafnframt eftir ónafngreindum en háttsettum írön