Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rússar og Úkraínumenn lýsa hvorir yfir sínu vopnahléi

Úkraínumenn og Rússar hafa hvorir tveggja lýst yfir vopnahléi á næstu dögum, þó ekki þeim sömu.Rússnesk stjórnvöld hafa lýst yfir einhliða vopnahléi dagana 8. og 9. maí á Föðurlandsdeginum mikla, sigurdegi síðari heimsstyrjaldarinnar, og hóta stórfelldum eldflaugaárásum á miðborg Kyiv brjóti Úkraínumenn gegn því.Rússneska varnarmálaráðuneytið sagði á skilaboðaforritinu MAX að Vladimír Pútín, æðsti maður heraflans, hefði ákveðið vopnahléð og vonaðist til að Úkraína virti það. Ella væru almenningur og erlendir sendiherrar hvattir til að yfirgefa borgina í skyndi.Þarlend stjórnvöld brugðust við með því að boða eigið vopnahlé frá miðnætti 6. maí og sögðu skilaboðin benda til þess að Rússum gæti varla verið alvara með hátíðahöldin og þá tilætlunarsemi að Úkraína virti vopnahlé á hernaðarhátíð þ
Rússar og Úkraínumenn lýsa hvorir yfir sínu vopnahléi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta