Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Dolly Parton frestar tónleikum vegna heilsufarsvanda

Dolly Parton hefur frestað nokkrum tónleikum vegna veikinda. Hún varð áttræð í janúar og hafði um hríð undirbúið tónleikahald í gleðiborginni Las Vegas. Í myndskilaboðum á samfélagsmiðlum sagðist hún færa aðdáendum sínum góðar og slæmar fréttir.Þær góðu væru að hún brygðist vel við lyfjum og annarri meðferð og að heilsan batnaði dag frá degi. Vondu fréttirnar væru að hún væri ekki alveg nógu hraust til að koma fram á sviði að svo stöddu.Dolly Parton tilgreindi ekki hvað hrjáir hana en sagði í léttum tóni að það væri ómögulegt að spranga með svima um sviðið á þrettán sentímetra háum hælum að burðast með banjó, gítara og þess háttar í fanginu.Aðdáendur hennar vissu manna best að það myndi hún alltaf gera. „Þið vitið að ég mun alltaf elska ykkur,“ sagði Dolly og vísaði þannig til eins frægast
Dolly Parton frestar tónleikum vegna heilsufarsvanda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta